Breytingar – kvöldvaka og 8. flokks mót

Stelpurnar stóðu sig allar alveg rosalega vel í dag og gaman að sjá leikgleðina þrátt fyrir kulda og smá vætu🩷
Kvöldvakan verður inni í íþróttahúsi kl. 19:30 í kvöld. Gengið er inn í gegnum Árskóla og afar mikilvægt er að fara ekki inn á útiskóm og ganga vel um. Ágúst mætir og kætir okkur í kvöld og við hvetjum stelpurnar til að dansa eins og vindurinn og gleðjast með liðsfélögunum.

8. flokks mótið var fært til morguns og fer fram á gervigrasvellinum kl. 11:00. Að því móti loknu fá keppendur medalíu og grillaða pylsu.

Færðu inn athugasemd