Skagafjörður býður upp á fjöldan allan af skemmtilegri afþreyingu.
Frítt er í sund í sundlaugum Skagafjarðar gegn framvísun
þátttökuarmbands. Sundlaugar eru staðsettar á Sauðárkróki, Varmahlíð og Hofsósi.
Sundlaug Sauðárkróks
ATH! aðeins pottar, gufa og sauna opið vegna framkvæmda
- Föstudagur: lokað vegna framkvæmda
- Laugardagur: 10:00 – 18:00
- Sunnudagur: 10:00 – 18:00
Sundlaug Varmahlíðar
- Föstudagur: 12:00 – 21:00
- Laugardagur: 10:00 – 18:00
- Sunnudagur: 10:00 – 18:00
Sundlaug Hofsósi
- Föstudagur: 07:00 – 20:00
- Laugardagur: 10:00 – 20:00
- Sunnudagur: 10:00 – 20:00
Molduxi Trail
Spennandi utanvegarhlaup í fallegu umhverfi Skagafjarðar sem fram fer föstudaginn 7. ágúst!
Um er að ræða einstakt tækifæri til að njóta náttúrunnar, hreyfa sig og eiga góðan dag með fjölskyldu og vinum.
Litli skógur – gönguleiðir – Frisbígolfvöllur
Skógurinn er staðsettur fyrir ofan heimvist FNV eða Hótel Miklagarð eins og vistin heitir á sumrin. Sauðáin rennur í gegnum skóginn. Margir stígar liggja í og um Litla skóg og því hægt að finna skemmtilegar göngu/hlaupaleiðir þar. Einnig er frisbígólfvöllurinn staðsettur í Litla skóg. Gömul sundlaug er staðsett innarlega í skóginum, þar sem krökkum þykir skemmtilega að busla í á sólríkum sumardegi.
Golfvöllur – Hlíðarendavöllur
Golfklúbbur Skagafjarðar heldur úti 9 holu golfvelli uppi á Nöfum, rétt hjá tjaldsvæði mótsins.
Fjaran – sandarnir
Fjaran teygir sig frá Sauðárkróki og alla leið að ósi Héraðsvatna og er um 5 km löng. Fjaran er vinsælt göngusvæði og þar er m.a hægt að sjá bátsflak Ernunnar.