Við erum heldur betur farin að verða spennt fyrir helginni og hlökkum til að taka á móti ykkur.
Dagskrá og leikjaplan er komið hér inn á síðuna en hér eru einni beinir linkar:
Dagskrá: https://kroksmot.is/dagskra/
Leikjaplan: https://obmot.torneopal.com/
Á laugardag, eftir leiki dagsins, verður margt um að vera á vallarsvæðinu þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Battamót fyrir keppendur: 2 og 2 saman þar sem keppt er í fótbolta á litlum velli – verðlaun veitt á kvöldvöku
Skráning fer fram í sjoppunni.
Skotkeppni fyrir bæði keppendur og eldri – mælum sérstaklega með að þjálfarar mæti og sýni hvað þeir geta ![]()
Hoppukastalar fyrir þau yngstu ef veður leyfir og alls konar fleira skemmtilegt.
Sundlaug: Framkvæmdir standa yfir í sundlaug Sauðárkróks og eingöngu er opið í heita potta og gufubað. Við stöndum hins vegar svo vel að hafa sundlaugar einnig í Varmahlíð og á Hofsósi sem við hvetjum ykkur til að nota.
Öll gisting fer fram í Árskóla sme opnar kl. 18:00. Inngangurinn er eins og myndin sýnir.

Færðu inn athugasemd