Leikreglur

  • Leiktími er 2 x 7 mín (hálfleikur er í 1-2 mínútur)
  • 5 leikmenn eru inni á leikvelli í hverju liði
  • Notast er við bolta #3

Upphafsspyrnur og útspörk:

  • Ekki má skora úr innkasti, upphafsspyrnu eða beint úr útsparki (þegar markmaður heldur á boltanum og sparkar út), jafnvel þó markmaður verji hann inn.
  • Þegar markmaður byrjar með boltann við markspyrnu á andstæðingurinn
    að bakka aftur fyrir miðju. Þjálfarar og dómarar aðstoða við það að halda þessari reglu í leikjum.

Sending til baka:

  • Markmaður má alltaf taka bolta með höndum innan vítateigs ef sent er til baka á hann

Aukaspyrnur:

  • Allar aukaspyrnur eru beinar og má skora beint úr þeim.
  • Fjarlægð í varnarvegg skal vera um 6 metrar.

Innköst og hornspyrnur:

  • Ef boltinn fer út fyrir hliðarlínu skal taka innspark eða knattrak.
    • Innspark: Bolti er lagður kyrr á hliðarlínu (eða þar sem endalína og hliðarlína skerast ef um horn er að ræða) og honum komið í leik með sendingu. Óheimilt er að lyfta bolta hærra en í hnéhæð með innsparki. Óheimilt er að skora beint úr innsparki.
  • Hornspyrna: Boltinn er lagður kyrr á horni leikvallarins og komið í leik með spyrnu. Það má lyfta boltanum. Það má skora beint úr hornspyrnu. Andstæðingurinn á að vera 2m frá spyrnu.
  • Varnarmaður má staðsetja sig í 2ja metra fjarlægð frá þeim stað sem innkast eða hornspyrna er tekin.

Vítaspyrnur:

  • Eru teknar á vítateigslínu fyrir miðju marki.

Annað:

  • Engin úrslit verða skráð með meira en 3ja marka mun þó leikir vinnist stærra. (7-0 sigur er skráður 3-0 og 7-1 sigur skráður 4-1 og svo fr.v.)
  • Skoruð mörk skipta ekki máli í lokin heldur markamunur (munur á skoruðum mörkum og fengnum á sig).
  • Ef lið verða jöfn að stigum í lokin ræður innbyrðis viðureign, eftir það markamunur (m.v. +3 regluna). Ef enn er jafnt varpar kerfið hlutkesti.
  • Ef leiðrétta þarf úrslit skal koma þeim skilaboðum áfram til mótsstjórnar eins fljótt og auðið er. Annað hvort í síma 868-5028 eða með því að mæta í stjórnstöð í vallarhúsi.

ATH. Hundar eru bannaðir á vallarsvæðinu.